Radisson Blu Saga Hotel, Reykjavik

 
Bóka á þessu hóteli

Þjónusta

Mecca Spa

Að loknum ströngum fundadegi eða langri ferð er einstaklega gott að láta líða úr sér í heilsu ræktinni Mecca Spa. Það er unaðslegt að halla sér aftur, slaka á og njóta þess að láta dekra við sig með andlitsbaði, leirnuddi, handsnyrtingu, fótsnyrtingu eða allsherjar líkamsmeðferð. Orkuboltarnir geta tekið hressilega á í fullkomnum tækjasal Mecca Spa.Gestir á hótelinu geta nýtt sér heilsuræktarstöðina endurgjaldslaust.

Lesa meira

Rakarastofa & HárSaga

Vönduð rakarastofa er á neðstu hæð hótelsins og býður upp á hármeðferðir af öllu tagi. Þá fæst þar einnig úrval af hár- og húðsnyrtivörum fyrir karlmenn.
Opið: Mán.-fös. kl. 9:00-18:00, lau. kl. 10:00-14:00 (á tímabilinu 1. sept. til 30. apríl)

Lesa meira

ITA - Iceland Travel Assistance

ITA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í bókunarþjónustu fyrir íslenskan ferðaiðnað. Fyrirtækið rekur gjaldeyrisviðskipti (Money Exchange) og þjónustar erlenda ferðamenn með endurgreiðslu á virðisaukaskatti (VAT). Samhliða þessu rekur ITA verslun sem selur einkum íslenska hönnun, ásamt ferðatengdri vöru.

Lesa meira

Minjagripaverslun

Í minjagripaversluninni fæst allt milli himins og jarðar, allt frá sælgæti og snyrtivörum upp í handprjónaðar íslenskar ullarpeysur. Opið: Alla daga kl. 8:00-14:00 og 16:00-20:00. 

Lesa meira

Banki

Opinn alla virka daga kl. 9:15-16:00. Hraðbanki er við bankann og er hann opinn allan sólarhringinn.

www.kbbanki.is

Lesa meira

Þjónustan

  • 100% ánægja meðal gesta
  • Öll þjónusta með einu handtaki 
  • 3ja tíma hraðþvottaþjónusta
  • Glæsilegt morgunverðarhlaðborð
  • Hraðútskráning
  • Útskráning seint
  • Morgunverður til að taka með

Frítt háhraða-Internet

Ókeypis Internetaðgangur er hluti af E@syConnect-þjónustu Radison Blu-hótelanna. Háhraða- og/eða þráðlaus netaðgangur er nú ókeypis fyrir alla gesti hótelsins.

Með því að fylgja einföldum leiðbeiningum okkar geturðu skráð þig inn á fyrirtækjanetið þitt, notað tölvupóst, halað niður tónlist, verslað, gert allt sem þú þarft að gera á netinu, frítt!