Radisson Blu Saga Hotel, Reykjavik

 

Veitingastaðir

Grillið

Í meira en fjóra áratugi hefur hlýtt og notalegt umhverfið í veitingahúsinu Grillinu á áttundu hæð hótelsins yljað matargestum og fært unað bragðlaukanna í nýjar hæðir. Afbragðsréttir, eðalvín, fjölbreyttir matseðlar og framúrskarandi þjónusta, og baksviðið er ekki af verri endanum - einhver tilkomumesta og víðasta útsýn yfir borgina sem um getur í allri Reykjavík.

Lesa meira


Skrúður

Veitingahúsið Skrúður á jarðhæð hótelsins hefur á að skipa hópi hugmyndaríkra meistarakokka og þar mætast allir helstu straumar heimsins í matargerð. Þú nýtur einstakrar máltíðar í rúmgóðu og björtu umhverfi, hver sem matarsmekkurinn er.

Lesa meira


Mímisbar og setustofa

Í hjarta Radisson Blu Hótels Sögu er Mímisbar, kjörinn staður til að fá sér kaffibolla á rólegum eftirmiðdegi eða til að lyfta sér upp á eftirminnilegu kvöldi.

Lesa meira